Viðskiptaskilmálar

1. gr.
Almennt gildissvið
Eftirfarandi skilmálar teljast samningur um raforkuviðskipti við Orku heimilanna ehf. („Orka heimilanna“), kennitala 420218-2060, Mánagötu 11, 105 Reykjavík. Skilmálarnir skulu gilda um öll viðskipta- og samningssambönd Orku heimilanna að meðtöldum raforkusamningum, nema um annað sé sérstaklega samið. Um sölu Orku heimilanna á raforku til viðskiptavina gilda raforkulög nr. 65/2003, reglugerð um framkvæmd raforkulaga nr. 1040/2005 og reglugerð um raforkuviðskipti og mælingar nr. 1150/2019 með síðari breytingum. Skilmálar þessir skoðast meðal annars sem staðlaðir samningar um viðskipti með raforku milli sölufyrirtækis og almenns notanda skv. 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 1150/2019.
Viðskiptavinir Orku heimilanna samþykkja að með gerð raforkusölusamnings, hvort sem hann er gerður skriflega, munnlega eða með rafrænum hætti, þá gilda um hann þessir skilmálar. Orka heimilanna annast ekki framleiðslu, flutning eða dreifingu á raforku og fela skilmálar þessir hvorki í sér slíka þjónustu né ber Orka heimilanna nokkra ábyrgð á því sem slíka þætti varðar. Orka heimilanna áskilur sér fullan rétt til að hafna viðskiptavini áður en þjónusta er veitt.

2. gr.
Notkun
Viðskiptavinur samþykkir með gerð raforkusamnings við Orku heimilanna að veita Orku heimilanna umboð til að afla upplýsinga um raforkunotkun viðskiptavinar frá viðkomandi dreifiveitu. Umboðið nær meðal annars til upplýsinga um númer veitu og mælis, dreifisvæðis, heimilisfangs, dreifiveitutaxta, áætlaða ársnotkun, meðalnotkun, síðasta álestur, mæliaðferð, stöðu mælis, margföldunarstuðul og stafafjölda mælis. Ef um tímamældar veitur er að ræða þá eru tímagildin afhent allt að 24 mánuði aftur í tímann. Raforkunotkun viðskiptavinar við gerð raforkusamnings er notuð til ákvörðunar áætlunar um orkunotkun. Sé um að ræða nýjan viðskiptavin sem ekki hefur áður keypt orku er Orku heimilanna heimilt að áætla notkun með hliðsjón af sambærilegri notkun. Þegar viðskiptavinur gerir raforkusamning við Orku heimilanna og viðkomandi er í sölu hjá öðru sölufyrirtæki tekur það að lágmarki þrjár vikur að skipta um söluaðila. Þetta er í samræmi við 9. kafla Netmála Landsnets hf. sbr. B6 skilmála um samskipti milli aðila á raforkumarkaði með grunn-, mæli- og uppgjörsgögn. Sé viðskiptavinur að taka við nýrri veitu eftir flutning er um notendaskipti að ræða og taka þá viðskipti gildi við álestur mælis. Við búferlaflutninga eða skráningu á nýju heimilisfangi verða notendaskipti sem leiða til þess að tenging viðskiptavinar við raforkukerfi flyst yfir á nýtt heimilisfang.

3. gr.
Verð, greiðsluskilmálar og innheimta
Verð Orku heimilanna til heimila og fyrirtækja fer eftir gildandi verðskrá hverju sinni, nema um annað sé sérstaklega samið. Verðskráin er birt á heimasíðu Orku heimilanna en einnig kemur verð fram á reikningum frá Orku heimilanna. Orku heimilanna ber jafnframt að innheimta skatta og gjöld vegna raforkunotkunar samkvæmt löggjöf hverju sinni. Viðskiptavinur skal greiða mánaðargjald samkvæmt reikningi frá Orku heimilanna. Gjalddagi reiknings skal vera 5. hvers mánaðar eða fyrsti virki dagur þar á eftir. Orka heimilanna innheimtir seðilgjald að upphæð 113 kr með vsk. Sé reikningur frá Orku heimilanna ekki greiddur á gjalddaga reiknast af kröfunni dráttarvextir sbr. III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá gjalddaga til greiðsludags. Auk dráttarvaxta innheimtir Orka heimilanna allan innheimtukostnað samkvæmt gildandi reglum. Orku heimilanna er jafnframt heimilt að stöðva orkuafhendingu til viðskiptavinar með fulltingi dreifiveitu í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 1150/2019, sbr. einkum 11 gr. ef viðskiptaskuldin lendir í vanskilum og almennar innheimtuaðgerðir seljanda bera ekki árangur þar til reikningur er að fullu greiddur ásamt áföllnum kostnaði. Heimild er í 43. gr. raforkulaga nr. 65/2003, sbr. 10. tölul. 1. mgr. 1. gr. laga um aðför nr. 90/1989, til aðfarar fyrir kröfunni án undangengins dóms eða sáttar.

Með samþykki á skilmálum þessum samþykkir viðskiptavinur að öll frum- og milliinnheimta vegna vanskila, þ.e. birting innheimtuviðvörunar og milliinnheimtubréfa, fari fram með stafrænum hætti. Á það við hvort sem um er að ræða innheimtu sem framkvæmd er af Orku heimilanna eða af hálfu innheimtufyrirtækis eða lögmanns sem Orka heimilanna felur að annast innheimtuna. Í stafrænni innheimtu felst að allar tilkynningar vegna vanskila berast viðskiptavini með stafrænum hætti t.d. með tölvupósti á uppgefið netfang hans eða í rafræn skjöl í netbanka. Viðskiptavinur ber fulla ábyrgð á skráningu netfangs síns og því að tilkynna þær breytingar til Orku heimilanna sem hann kann að gera á netfangi sínu. Hafi viðskiptavinur vanrækt þá skyldu sína að uppfæra upplýsingar um netfang ber hvorki Orka heimilanna né innheimtuaðili ábyrgð á því að tilkynningar berist ekki viðskiptavini, né því tjóni sem viðskiptavinur kann að verða fyrir vegna þess að framangreind samskiptaleið var notuð. Viðskiptavinur gerir sér grein fyrir að netfangi hans kann að vera miðlað til þriðja aðila, þ.e. til innheimtuaðila, í framangreindum tilgangi. Viðskiptavinur gerir sér grein fyrir að þrátt fyrir að innheimta fari fram með stafrænum hætti er frum-og milliinnheimtukostnaður innheimtur í samræmi við reglugerð nr. 37/2019 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl. Viðskiptavini er heimilt að afturkalla samþykki um að innheimta fari fram með stafrænum hætti. Tekur afturköllun gildi um leið og upplýsingarnar eru sannanlega komnar til Orku heimilanna.

4. gr.
Uppsögn
Raforkusamningur Orku heimilanna og viðskiptavinar er ótímabundinn nema ef um annað er sérstaklega samið. Báðum aðilum er heimilt að segja upp raforkusamningnum og uppsagnarfrestur er 3 vikur. Uppsögn samnings tekur gildi næstu mánaðarmót eftir að 3 vikur eru liðnar.

5. gr.
Riftun
Orku heimilanna er heimilt í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 1050/2004, sbr. 11. gr. að rifta raforkusamningi við viðskiptavin greiði hann ekki í kjölfar innheimtuaðgerða. Sé bú viðskiptavinar tekið til gjaldþrotaskipta skal Orku heimilanna heimilt að rifta samningi fyrirvaralaust.

6. gr.
Ábyrgðarreglur
Orka heimilanna ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til óviðráðanlegra atvika (force majeure) en með því er almennt átt við aðstæður sem hvorugur aðili gat séð fyrir og sem hafa bein áhrif á efndir samnings. Að öðru leiti fer um þetta efni samkvæmt almennum reglum kröfuréttar um efndir loforða og samninga. Samningsaðili sem ber fyrir sig óviðráðanlegu atviki samkvæmt þessari grein hefur sönnunarbyrði um að slíkt atvik hafi orðið. Skal aðili tilkynna gagnaðila þar um, með sannanlegum hætti og leggja fram nauðsynleg gögn um tilvist, efni og tímalengd slíkra atvika sé þess krafist af gagnaðila. Ef erfiðleikar eru við orkuöflun er Orku heimilanna heimilt, án þess að til bótaskyldu stofnist, að skerða afhendingu raforku. Orka heimilanna tilkynnir slíka skerðingu fyrirfram eins og unnt er kæmi til þessa.

7. gr.
Synjun
Orka heimilanna áskilur sér rétt til að synja nýjum aðila, eða nýjum notkunarstað núverandi viðskiptavinar, um afhendingu á raforku, svo sem ef Orku heimilanna er illkleift að afhenda umbeðið magn af orku eða vegna fyrri vanskila aðila, stöðu á vanskilaskrá, úrskurðar um gjaldþrot og því um líkt.

8. gr.
Ágreiningsmál
Komi upp ágreiningur milli Orku heimilanna og viðskiptavinar þá skulu aðilar reyna að sætta ágreininginn en verði sáttum ekki við komið skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

9. gr.
Persónuvernd
Heimildir Orku heimilanna til vinnslu persónuupplýsinga byggja á ákvæðum laga nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Gagna- og upplýsingaöflun er takmörkuð við þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að uppfylla skyldur okkar og fer vinnsla fram í samræmi við persónuverndarstefnu sem er aðgengileg á vefsvæði Orku heimilanna.

10. gr.
Breytingar á viðskiptaskilmálum
Orka heimilanna áskilur sér einhliða rétt til að breyta viðskiptaskilmálum þessum. Breytingar á viðskiptaskilmálunum taka gildi frá birtingu þeirra á heimasíðu Orku heimilanna.

Gildistaka 22. október 2024.