Algengar spurningar
Hvernig skrái ég mig í viðskipti?
-
Veljið hnappinn “Koma í viðskipti” á forsíðu og þá opnast innsláttarform. Eða veljið hér: Koma í viðskipti
-
Sláið inn nafn, kennitölu, heimilisfang, síma og tölvupóst og veljið að skrá upplýsingar.
-
Þá færð þú sendan tölvupóst sem þú samþykkir, þar má einnig koma á framfæri frekari upplýsingu varðandi skráninguna.
-
Eftir það klárum við málið og þú ert kominn í viðskipti.
Hvað breytist þegar ég kem í viðskipti við Orku heimilanna?
Ekkert breytist við afhendingu rafmagns en mánaðarlegir reikningar lækka.
Kostar eitthvað að skipta til eða frá Orku heimilanna?
Nei, það kostar ekkert að skipta milli orkufyrirtækja.
Þarf ég að gera eitthvað fleira eftir að hafa skráð mig í viðskipti?
Nei, þegar þú hefur skráð þig á vefsíðu og svarað tölvupóstinum frá okkur sjáum við um restina.
Hvað tekur langan tíma að skipta um söluaðila?
Almenna reglan er sú að söluaðilaskipti taka líðandi mánuð plús einn. Þannig að ef þú skráir þig í viðskipti til Orku heimilanna t.d. um miðjan apríl þá hefjast viðskiptin 1. júní.
Ef þú ert hins vegar að kaupa nýja íbúð hefur þú einn mánuð til að ákveða við hvaða söluaðila þú skiptir. Þegar þú hefur valið söluaðila þá hefjast viðskiptin frá þeim tíma sem lesið er af mælinum.
Hvað ef ég skipti um skoðun?
Þú getur alltaf skipt um skoðun, það er lítið mál að skipta milli orkufyrirtækja og kostar ekki krónu.
Er Orka heimilanna í mínu bæjarfélagi?
Já, Orka heimilanna þjónar öllu landinu.
Er sama verð á rafmagni um allt land?
Já, Orka heimilanna er með sama verð um allt land.
Þarf raforkukaupandi að gera samning við sölufyrirtæki?
Já, raforkusala ber að gera samning við viðskiptavini sína. Samningarnir geta verið rafrænir að því tilskildu að þeir séu staðfestir með sannanlegum hætti. Þegar viðskiptavinur skráir sig í viðskipti við Orku heimilanna fær hann í kjölfarið tölvupóst sem hann staðfestir og þar með er kominn á rafrænn samningur.
Þarf ég einhvern aukabúnað?
Nei, enginn aukabúnaður, ekkert rask og engin truflun á notkun.
Get ég líka flutt fyrirtæki til Orku heimilanna?
Já, ekkert mál.
Hvaða greiðsluleiðir eru í boði?
Við bjóðum upp á kröfu á heimabanka. Kröfuna má láta setja í beingreiðslur í bankanum. Auk þess bjóðum við viðskiptavinum upp á að greiða inn á reikning en með því verður til inneign sem fer upp í reikninga og þá verður ekki til krafa. Ekki er boðið upp á skuldfærslur af kortum.
Get ég fengið reikning sendan í pósti?
Nei en með því að senda fyrirspurn á [email protected] má fá reikninginn sendan í tölvupósti. Þetta er gert til að spara kostnað og af umhverfisvendarsjónarmiðum.
Hver er munur á dreifingu eða notkun?
Innheimta vegna rafmagns er tvíþætt.
Annars vegar greiða notendur fyrir það rafmagn sem þeir nota og hins vegar fyrir dreifingu rafmagnsins. Notendur geta ekki valið dreifiaðila heldur er dreifing rafmagns sérleyfisþáttur og einn aðili sér um dreifingu á viðkomandi svæði.
Notendur geta hins vegar valið sér þann raforkusala.
Hvað er dreifiveita?
Dreifiveitur eru þau fyrirtæki sem sjá um að koma rafmagninu frá flutningsstað til endanotanda. Dreifiveitan rukkar notandann fyrir flutninginn og dreifinguna og sér um öll samskipti t.d. vegna álestra og bilanna. Viðskiptavinir hafa ekki val um við hvaða dreifiveitu þeir versla.
Hvað er flutningsfyrirtæki?
Fluttningsfyrirtæki eða raforkuflutningsfyrirtæki sér um að koma raforku frá framleiðslustað til dreifiveitu. Landsnet er eina flutningsfyrirtækið á landinu.
Hvað er raforkusölufyrirtæki?
Raforkusölufyrirtæki eru fyrirtæki sem útvega rafmagn, annað hvort með eigin framleiðslu eða með því að kaupa af öðrum raforkuframleiðandum. Fyrirtækið selur svo orkuna eftir tilsettum reglum til endanotenda. Notendum er frjálst að skipta við hvaða sölufyrirtæki sem er.
Hvað er græn orka og selur Orka heimilanna græna orku?
Græn orka er skilgreind sem umhverfisvæn orka og felur ekki í sér losun mengandi efna. Til grænnar orku telst til dæmis vatnsorka, jarðvarmaorka, sólarorka og vindorka.
Hvað er upprunavottorð?
Upprunavottorð er staðfesting á því hvernig raforka er framleidd. Á Íslandi er raforka nánast öll framleidd úr endurnýjanlegum orkulindum en íslenskir raforkuframleiðendur hafa selt upprunaábyrgðir til erlendra aðila sem vilja geta selt umhverfisvæna orku til viðskiptavina sinna.
Hverjir eru eigendur Orku heimilanna?
Eigendur eru starfsmenn Orku heimilanna, þeir Bjarni Ingvar Jóhannsson og Loftur Már Sigurðsson.
Hvernig er meðhöndlun persónuupplýsinga háttað?
Við gætum trúnaðar um viðskiptavini og aðra þá sem við eigum í samskiptum við. Orka heimilanna safnar eingöngu nauðsynlegum upplýsingum til að sinna eðlilegri starfsemi orkufyrirtækis og tryggja góða þjónustu handa viðskiptavinum og tryggir eftir fremsta megni öryggi þeirra persónuupplýsinga sem safnað er.
Sjá nánar Persónuverndarstefnu Orku heimilanna.